SKÖMMIN ER ÖLL TRUKKB'ILSTJ'ORA

 

Menn verða að vera ábyrgir verka sinna. Þessi bréf til dómsmálaráðherra. Langtíma afbrot á vegum borgarinnar. Steinninn sem lenti í höfði lögregluþjónnsins. Strákarnir í nasistabúningunum. Árás við afhendingu bílana. Kassar af eggjum. Öskrandi forystumaður bifreiðastjóra í fjölmiðlum þar sem hann fullyrðir að hann sé þjóðin og ráðamenn gegni honum bara alls ekki. Fíflalæti og kjaftshögg  flutningabílstjóra á skólalóð. Sturtað möl eða mold á vegi .Kröfurnar vægast sagt kjánalegar (lækka verð á olíu. Íslendingar þurfi ekki að hvíla eins og kolleggar í Evrópu) Já vökulögunum skal snúið við. Það eina skiljanlega í kröfunum eru kamrar á hvíldarstöðum um nætur. Ásýnd trukkabílstjóra er orðin verulega óhrjáleg. Satt að segja eins og illa reittur kalkúnn. Það af aðgerðum lögreglunnar sem mest fór fyrir brjóstið á fólki var öskur sérsveitarmannsins:

GAS ! GAS ! er víst í prógramminu til að aðvara fólk um að úðin frá þessum brúsum sé andstyggilegur í auga og best fyrir það að forða sér hið snarasta. Hljómaði illa en ekki illa meint.   


mbl.is Sturla: „Ekki á okkar ábyrgð"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Með þennan lögreglumann sem öskraði GAS ! GAS!.

Reynið sjálf að standa fyrir framan gargandi reiðan hóp sem telur 50 manns (veit ekki alveg hvað voru margir þarna) og reynið að kalla til þeirra þannig að þeir vita hvað þú ert með eða hvað þú ert að segja.  Ég býst við að allir myndu verða rauðir í framan af áreynslu.

Ég er ekki að réttlæta þó gasnotkun. Já, og eitt enn. Talað var um að þarna hafi verið kona með barn í höndunum sem fékk gas yfir sig. Hvað var kona að gera þarna með barn í höndunum, alveg í hringiðu vitleysunnar. Vona að barnið og konan (móðirin) hafi sloppið við úðann.

Kv.Árni B. 

Árni B. (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 08:31

2 Smámynd: Snorri Hansson

Það er og verður alltaf hægt að verða öskureiður yfir pólitík ,dómsmálum og hinum ýmsu framkvæmdum. Hvort ráðherra og ráðuneytisfólk eigi að vera svo ósvífin að leigja litla flugrellu til Noregs. Er þá ekki sjálfsagt mál (ef við erum ekki trukkabílstjórar) að henda einhverju nagglaspítudrasli á Miklubraut og loka fyrir umferð í nokkra tíma? Eru það ekki hrein mannréttindi ? Og svo kemur lögreglan og býður í nefið.

Snorri Hansson, 25.4.2008 kl. 12:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband