29.6.2011 | 22:40
Hvað varð um sílið ?
Ég ætla að byrja á því að láta vita að ég hef ekkert vit á málefninu. Bara það sem hefur síast inn í gegnum tíðina.
Það er afskaplega auðvelt að hreyta ónotum í Hafró. Hvað hafa þeir mikið fjármagn? Hafa hafrannsóknir verið í niðurskurði eins og allt annað? Ef svo þá erum við ekki að skjóta okkur í fótinn?
Við sem lifum að stórum hluta á því sem sjórinn gefur. Hljótum að þurfa að vita allt. Ég meina allt um fæðukeðjuna í hafinu til að geta áætlað leyfilegan afla. Veðurfræðingar hafa hreint ótrúlega víðfeðmar upplýsingar að vinna með.
Fiskifræðingar að telja þorska virkar á mig eins og að þeir séu að skoða lóna í naflanum á sér.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Fiskifræðingar eru stæsti skaðvaldur lífríkisins í kringum landið.
Jón Steinar Ragnarsson, 30.6.2011 kl. 00:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.